Rassálfarnir

22.08.2007 15:40:27 / Hrefna

sniðug síða...

 

fann slóð á líka svona sniðuga síðu :) hér eru góð húsráð, svo eru líka fullt fullt af uppskriftum á síðunni sem þið getið skoðað sjálf ef þið viljið :)

 

Húsráð

 




Setja dash af mýkingarefni út í vatnið þegar er verið að þrífa rúður

Setja edik út í vatnið þegar er verið að þrífa baðflísarnar

Látið 2-3 tsk af matarsóda standa í opnu íláti í ískáp og þið losnið
við alla lykt úr honum!

Ef börnin eru að perla og perlurnar fara út um allt þá er bara að
skella nælonsokk á ryksuguna og sjúga perlurnar upp, taka sokkin og
tæma í perluboxið.

Til þess að þrífa skýjaða blómavasa er gott að fylla þá af vatni og
setja fullt af salti og þá verða þeir aftur glærir og fínir.

Sítrónudroparnir eru góðir til að ná upp límmiðaklessum

Gott ráð til að pússa silfrið. Sjóðið vatn og hellið í bala, setjið
álpapparsræmur út í og smá dass af matarsóda og hendið síðan silfrinu
útí.

Svo er um að gera að slaka á meðan silfrið hreinsast sjálft, ekkert
pússerí og vesen.

Bílabón á flísarnar á baðinu, halda glansanum í ár

Sítrónudropar eru líka góðir til að ná límklessum úr hári þegar verið
er að föndra

Ef lím eða vax fer í fötin, setjið dagblað yfir blettinn og straujið
yfir á lágum hita, nær öllu úr.

Til að ná grasgrænku úr fötum, hellið nýmjólk í blettinn og svo
uppþottarlegi og nuddið saman

Fitublettir, hellið kóki í blettinn (passa það sé gos í kókinu) og
látið liggja í c.a. mínútu og svo beint í þvottavélina.

Til þess að láta krómaða hluti sem eru orðnir ryðgaðir verða aftur
krómaða þá nota kók og álpappír.

Til þess að fá gljáa á parket er best að skúra upp úr Lúx spæni (eins
og maður notar við að handþvo flíkur). Eftir 2-3 skipti er parketið
komið með rosalega fallegan gljáa

Tannkrem á silfur, nudda og skola svo með köldu vatni. Tannkrem á
pennastrik og liti á veggjum þrífa það svo af með blautri tusku.

Uppþvottalög á fitubletti í fötum eins og td eftir smjör, nudda
uppþvottaleginum í og láta hann liggja á í smá stund og smella þessu
svo í þvottavélina

Edik :) Er sótthreinsandi t.d. Er líka lyktareyðandi, blandaðu
borðediki við vatn og stjúktu innan úr skáp með vondri lykt, eða helltu
því í dýnu sem er vond lykt af, eða leggðu illa lyktandi í bleyti eða
settu smá edik í þvottvélina :) Ég þríf allt með ediki, gólf þurrka
af.... name it! Mjög gott að láta smá dry edik í skál og inní ískáp.
Eins að strjúka innan úr ískápnum með ediki til að losna við vonda
lykt. Edik lyktin fer síðan á örskotstundu, en hún tollir í tuskunni
svo ef þér líkar lyktin illa, hentu þá tuskunni í þvott!

Matarsódi: Blandar honum við örlítið vatn og þú er komin með lang, lang
besta ræstikremið! Hann er líka lyktareyðandi.

Mýkingarefni: Er afrafmagnandi og stórsniðugt til þess að m.a. strjúka
af rimlagardínum og rafmagnstækjum! Blandið mýkingarefninu við vatn og
vindið tusku uppúr því.

Kartöflumjöl: Dregur í sig vökva/raka. Ef það er raki í skáp eða dýnu
settu kartöflumjöl. Ef þú ert með brunninn bossa eða hlaupubólurass,
settu þá á það kartöflumjöl. Til að ná litum af vegg: tannkrem og
naglabursti. Gott er að vera í gúmmí hönskum. WD-40 hefur líka virkað vel.

Skera sveppi.. bara skella þeim í eggjaskerann:)

Hvítir sokkar verða alveg skjannahvítir ef þeir eru soðnir í vatni með
nokkrum sítrónusneiðum. Sítrónan er náttúrulegt bleikiefni. Sápuduft
fyrir UPPÞVOTTAVÉLAR gerir líka sokkana alveg hvíta.

 

slóðin á síðuna :)

http://www.blog.central.is/matarholan


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 19:34:49 / Hrefna

Rhodos

Jæja, þar sem það eru liðnir allmargir dagar síðan við komum heim er víst komin tími til að maður skrifi svona aðeins um ferðina :D

Þetta var alveg æðisleg ferð í alla staði. Vorum á ágætis þriggja stjörnu hóteli, sem var bara fínt. Það var þrifarlegt og með loftkælingu, sem voru kröfurnar sem að við settum... Það voru líka 2 sundlaugar sitthvoru megin við hótelið sem var mjög fínt líka. Nóg af bekkjum til að liggja á ef maður var í stuði til þess 8)

Fljótlega eftir að við vorum komin ákváðum við að leigja okkur bílaleigubíl og fara og skoða eyjuna sjálf, vildum ekki fara í þessar týpisku ferðir með heimsferðum þar sem maður þarf að vera í löngum rútuferðum, bíða í biðröðum og fylgja annarra skipulagi. þannig að við skoðuðum það sem við vildum sjá sjálf og tókum þann tíma í það sem að við vildum. Heppnaðist mjög vel, ótrúlega falleg eyja, með nóg af gömlum rústum til að skoða.

Toppurinn af ferðinni var nú samt örugglega köfunin sem að við fórum í, það var GEÐVEIKT!!! ég var reyndar algjör kjúklingur fyrst og ætlaði sko ekki að þora niður... Eftir mikla umhugsun ákvað ég að reyna á þetta, silgdi út í æðislega fallega vík með alveg tærum sjó, lét dressa mig upp í allan búnaðinn, hoppaði út í sjóinnmeð hinum sex í hópnum sem að ætluðu með, byrjaði að fara aðeins ofaní vatnið og panikkaði.... :^) ótrúlega skömmustulegt!!! fór beint upp úr aftur og upp í bát hálf skjálfandi af stressi/hræðslu.... Var búið að vera hræða mig með hákarlasögum heil lengi og einhvern vegin fór ýmindunaraflið allt á stað hjá mér, búin að horfa á of margar hákarlamyndir held ég. En allavega fór ég upp úr og fékk mér ískaldan öl á meðan ég beið eftir hinum í hópnum. Svo þegar þau komu fór ég aðeins að snorkla með þeim og skoðaði umhverfið á botninum sem var bara flott. Rosa mikið af fiskum þarna í öllum litum. Þegar við vorum svo komin upp í bátinn aftur bauð einn leiðbeinandin mér að fara með honum ein ofaní aftur, og aftur eftir smá umhugsun ákvað ég að kýla á það og sé sko EKKI eftir því!!! þetta var alveg magnað að koma svona ofaní sjóinn, sjá þetta allt saman. Hann hélt í hendina á mér allan tíman og þetta var bara ekkert mál... Maður fékk svona á tilfinninguna að maður væri ofaní fiskabúri, allt í flottum fiskum í kringum mann. Alveg magnað!!!

Þetta var allavega allt alveg magnað, mæli alveg hiklaust með þessum stað, rosa flott og skemmtilegt! góður matur og svona frekar ódýrt, allavega 50% ódýrara en hér, þó svo að það sé eitthvað búið að hækka eftir að evran kom.

Hér koma nokkrar myndir frá ferðinni :haha:

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 20:11:29 / Hrefna

og það er ákveðið!!!!

Fórum að skoða yndislegustu tíkina í heiminum í dag :)

Hún heitir Arta og kemur heim til okkar 22 júlí, daginn eftir að við komum heim frá Rhodos!!!

Arta er þarna lengst til vinstri á myndinni. Erum ekkert smá hamingjusöm með hana

:haha::haha::haha::haha::haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 17:32:39 / Hrefna

jæja...

Jæja þá ætla ég að reyna koma nokkrum línum hérna niður sem hefðu löngu átt að vera komnar :lol:

Nú eru aðeins 5 dagar í að við förum í hina ógleymanlegu Rhodos ferð okkar :) get varla beðið... Maður er nú búin að fá smá forsmekk af sólinni undanfarna daga og hún er bara yndisleg eins og alltaf. Vona bara að þessi hitabylgja verði gengin yfir áður en við komumst út, væri beta ef maður héldi meðvitund við sundlaugarbakkan 8|

Svo á morgun er líka stór dagur hjá okkur óla, við erum að fara skoða hvolp sem gæti hugsanlega orðið okkar!!! Þetta er ekkert smá sæt papillon tík sem býr á hvolsvelli. Siggi og Theodóra ætla að koma með okkur þar sem að hún þekkir ræktandan. Svo núna er bara að vona að okkur lítist vel á tíkina og getum fengið hana sem fyrst eftir að við komum heim...

Ca svona lítur snúllan út :haha:

Á föstudaginn síðasta var nú einnig stór dagur, ólafur heiðar átti afmæli, hann þurfti nú samt að vinna allt kvöldið því miður þannig að við náðum ekki að halda mikið upp á það, en það var samt smá afmæliskaffi um kvöldið fyrir foreldra. Þetta var einnig í fyrsta skiptið sem að foreldrar okkar hittust, enda löngu komin tími til... Allt gekk vel og þetta var ágætis kaffi og afmæliskaka.  En á næsta ári er svo stórafmæli hjá drengnum og þá verður ábyggilega eitthvað STÓRT gert fyrir strákinn :)

En nú er þetta nóg í bili.... Blogga ábyggilega næst frá sólinni út á Rhodos, þangað til þá njótið sólarinnar hér heima


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 22:35:29 / Hrefna

vinna og meiri vinna

Jæja þá eru prófin loksins búin eftir langa og mikla bið :) er mjög ánægð með það... Er enn að bíða eftir flestum einkunnum, en þær sem ég er búin að fá er ég bara frekar sátt með ;)

En þá tekur bara vinnan við, var að koma heim úr vinnuni núna og er alveg búin á því, þetta var 9 dagurinn í röð og alveg nokkrir eftir, þarf að vinna upp fríið sem ég tók yfir prófin 8| en það þýðir víst ekki að kvarta yfir því... bara aðeins að pústa =)

Þannig að það verður nú ekki gert mikið yfir helgina annað en að stunda vinnuna, en tek þetta bara með trompi helgina eftir það haha

Þar sem óli er búin að vera á næturvöktum síðustu nætur hittumst við því miður ekki mikið heldur, vona að það fari að breytast. Er að hugsa um að kíkja í keilu með honum og vinnunni hans á föstudagin, verðum nú að eyða einhverjum tíma saman... eins gott að vera með honum í liði þar sem hann rústar alltaf öllum hihi

En hvað er málið með veðrið... einhver óákveðni í gangi þarna uppi, bara sól, snjór og rigning til skiptis... get ekki beðið eftir að það fari eitthvað að skána og maður geti farið að hanga í sundlaugunum og láta steikja sig aðeins... Er alltaf vinsælt á sumrin =)

Ég er alveg dottin út úr þessum bloggheimi, hef eiginlega bara ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa, þannig að þetta verður ekki lengra í bili

reyni að vera eitthvað jákvæðari næst :haha:

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 16:02:12 / Hrefna

Bara eitt próf eftir!!!!

Jæja nú fer þetta að verða búið!!!! Síðasta prófið á morgun :D get bara varla beðið eftir að tímin líði og ég gangi út úr stofunni búin með prófið, öll fimm prófin!

Er alveg búin að vera mygla yfir þessum lestri öllum... Fyrsta prófið var 30 apríl hjá mér, er búin að liggja yfir þessu í meira en 2 vikur! alveg komin með meira en nóg, en það verður líka yndislegt að geta fagnað að lokum, á það svo sannarlega skilið hihihi

Annars var nú mjög spennandi kosningavaka í nótt, er eiginlega bara ánægð með úrslitin, vona bara að það myndist góð stjórn út úr þessu, alveg til í einhverja breytingu, svo lengi sem sjálfstæðisflokkurinn verði með í sjórninni :haha: farin að smitast af kallinum hérna hehehe

En nú tekur svo bara vinnan við á fullu! verð að reyna vinna upp eitthvað af þessu fríi sem að ég tók mér yfir prófin, verður alveg brjálað að gera á næstunni, en samt allt annað álag en að vera í lestri, þannig að ég er nú eiginlega bara fegin. Ætla líka að fara vera duglegri að gera neglur á næstunni, veitir ekki af að rifja þetta allt upp og safna smá auka pening 8)

Svo er ekki langt í að við förum út, get ekki beðið!! verður alveg frábært! vorum að klára að borga ferðina núna fyrir helgi þannig að við erum bara að bíða eftir að fá miðana senda heim, svo getur maður bara farið að pakka og stinga af =)

En hvað er málið með eurovision!!'?? var að passa í gærkvöldi og horfði á keppnina með öðru auganu og var alveg hneygsluð yfir úrslitunum! Hefði frekar séð úkraínu vinna, þó svo að það lag var nú ekki gott, en þetta var alveg hræðilegt... Sérstaklega sviðsframkoman og svona, þvílikt hallærislegt! Kanski ágætt að maður skildi ekki orð af því sem hún sagði, annars hefði þetta líklega verið enn hallærislegra. Óli bjó nú til ágætis texta við þetta þegar við horfðum á undanúrslitin, en ætla nú ekki að fara skrifa hann hér hehehe

ætla að reyna að fara taka mig á og lesa yfir þetta efni fyrir morgun daginn, þýðir ekki að slaka á núna :$

                           

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 00:03:15 / Hrefna

hmm...

Jæja ætli það sé ekki komin tími á að skrifa eitthvað... er á næturvakt í augnablikinu og ætti að vera læra, en þá er einhvernvegin svo auðvelt að finna eitthvað annað mikilvægara að gera eins og að blogga smá ;)

Við erum allavega flutt núna á bústaðarvegin og líkar bara mjög vel, fer vel um okkur í þessari íbúð :) erum búin að mála og koma okkur fyrir. Svo nú getur maður einbeitt sér alveg að náminu... Er að fara í fimm próf núna, frá 30 apríl til 14 maí... þá verður sko djammað :D allir sem eru í fríi á þriðjudeginum eru velkomnir með! Hlakka ekkert smá mikið til að vera búin í þessu!!! Og svo hlakkar mér eiginlega enn meira að komast til grikklands, verður æði!! erum að fara alveg 8 saman í ferð til rhodos í 2 vikur.... verður yndislegt, sól, kokteilar og strönd. hrein afslöppun

Svo fer ég líklega til svíþjóðar eitthvað í sumar líka, jafnvel við bæði. Óli hefur aldrei komið til svíþjóðar, þannig að það er alveg komin tími á að sýna honum aðeins fæðingarlandið, en þetta fer allt eftir því hversu dugleg við verðum að eyða í grikklandi :O) annars verðum við bara að fara seinna í ferð til sverige. verðum hvort sem er að fara í lengri ferð þangað seinna, svo ég geti nú leikið smá farastjóra og sýnt honum allt þetta helsta.  Nú í sumar verður bara farið stutt, langa helgi eða eitthvað, rétt til að segja hej við mömmu og svona :haha: og kanski kíkja í eina eða tvær búðir ;)

Við erum í hundahugleiðingum núna, skoða ýmsar tegundir og svona, vitum ekki alveg hvað við viljum, erum að spá í cavalier eða amerískum cocker núna... en svo sá ég líka geðveikt sætan voffa sem heitir boston terrier, mjög mikikð krútt!! á eftir að sýna óla hann og athuga hvar þeir eru ræktaðir og svona =) mjög gaman að skoða, ætlum að reyna finna einhvern ódýran samt, tími ekki að borga 200þús fyrir hann... værum jafnvel til í blandaðan hund... einhver sem veit um eitthvað sniðugt got?

Jæja þá byrjar liðið hérna að hringja bjöllunum sínum, sem þýðir að ég verð að fara að hlaupa... sí jú leiter


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 11:16:45 / steina

Til hamingju!!

Hún á afmæli í dag

hún á afmæli í dag

hún á afmæli hún Hrefna

hún á afmæli í dag !!

veii

Innilega til hamingju með daginn gamla mín! Þú ert algjört yndi!;)

 

Já og gleðilegt SUMAR allir!! jibbý :D:D:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 16:02:09 / Hrefna

spítalareynsla =)

Vá ég er búin að vera í verknámi núna síðustu 4 daga og þetta er ekkert smá spennandi!!! Er á 14G sem er hjartadeild upp á hringbraut, og hef fengið að gera alveg helling... Fyrsta daginn byrjuðum við á því að fá að fylgjast með rafvendingu, sem er þegar fólki er gefið stuð svona eins og í ER nema þetta var ekki svona akut endurlífgun, heldur er fólk bara innkallað heiman frá sér sem er með gáttaflökt og svæft í svona 5 mín á meðan því er gefið rafstuð - því það er nottlega alveg ógeðslega sárt ábyggilega  - og svo vakna þau bara mjög fljótt á eftir stuðið og muna ekkert eftir því hihi geðveikt sniðugt :lol: Allavega mjög flott að horfa á!!

Svo næsta dag fékk ég að fjærlægja æðalegg sem var i mjög stórri æð hjá viðbeininu, leggurinn var alveg svona 20 cm eða eitthvað og var saumaður í, þannig ég fékk að losa 2 spor af saumum og draga hann svo út, mjög skrítinn tilfinning að taka eitthvað svona :) 

Síðan hef ég fengið að fylgjast með bæði hjartaþræðingu sem er alveg ógeðslega töff aðgerð og gangráðsísettningu sem var líka mjög flott :haha:

Er alveg að fíla mig þarna, er reyndar alveg búin á því þegar ég kem heim því ég hef verið að fara vinna upp á elló beint á eftir og þá er þetta eiginlega bara eins og að vera vinna frá 8 til 23.30, sem er svoldið langur dagur... En ég verð bara upp á hjartadeild 3 daga í næstu viku og svo er verknámið búið.

Annars er alveg brjálað að gera hjá okkur óla, hittumst vara lengur, hann er búinn að vera á kafi í vinnu líka, bæði næturvaktir og svo með bræðrum mínum, en við ættum að sjást eitthvað um helgina þar sem við erum að fara þrífa, mála og flytja... s.s. brjálað að gera!! úff

ég er bara að verða mun þreyttari á að tala um hvað það er mikið að gera hjá mér heheh

Svo er ég og Theodóra mágkona að fara á eitthvað konukvöld á Sólon í kvöld held ég, verður ábyggilega spennandi, gaman að gera eitthvað svona til að slaka á og hafa gaman, kúpla sig aðeins frá þessari vinnu og fluttningum. 

Skrifa ábyggilega meira í næstu viku þegar ég er búin að fá að sjá eitthvað meira spennandi upp í LSH... síjú!


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 12:38:39 / Hrefna

... .. ... ... .... .... ... ... ...

jæja ætli það sé ekki komin tími á nýtt blogg????

Það nýjasta í fréttum hjá okkur er að við erum að fara flytja!!! vorum að fá að leigja íbúðina sem að amma átti á bústaðarveginum :) verður mjög fínt, ætlum að vera flutt út héðan fyrir mánaðarmót, þannig núna verður maður bara að bretta upp á ermarnar og byrja pakka í kassa og þrífa. Svo vorum við líka að spá í að mála íbúðina eitthvað áður en við flytjum inn, þannig að það verður nóg að gera á næstunni hjá okkur =) 

En svo verður þetta allt æðislegt þegar við erum flutt, komin upp úr jörðinni og fáum smá útsýni og almennilega glugga! verður þvílikiur munur :D Reyndar mjög gamalt hús, með gömlum innréttingum og svona, en við gerum þetta bara kósý!

Annars er allt svipað og alltaf, lífið gengur sinn gang, er bara að vinna og í skólanum, nóg að gera svosem... Er að fara í verknám í næstu viku, fer inn á hjartadeild sem verður mjög spennandi :) gaman að fá aðeins að sjá hvernig þetta er svona inn á spítalanum

úff ég er alveg dottin út úr svona bloggi, dettur bara eiginlega ekkert í hug að segja :/ En ég var líka að opna svona myspace síðu, allir að kíkja þangað, ætla að reyna vera dugleg að setja inn myndir og svona þar www.myspace.com/hrefna84

reyni að skrifa fljótlega :haha:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 23:46:23 / steina

Mistök í réttarsalnum ;)

These are from a book called Disorder in the American Courts, and are things people actually said in court, word for word, taken down and now published by court reporters who had the torment of staying calm while these exchanges were actually taking place. _________________________________________

ATTORNEY: Are you sexually active?
WITNESS: No, I just lie there.

_____________________________________

ATTORNEY: When is your birthday?
WITNESS: July 18th.
ATTORNEY: What year?
WITNESS: Every year.

____________________________________

ATTORNEY: What gear were you in at the moment of the impact?
WITNESS: Gucci sweats and Reeboks.

_____________________________________

ATTORNEY: This myasthenia gravis, does it affect your memory at all?
WITNESS: Yes.
ATTORNEY: And in what ways does it affect your memory?
WITNESS: I forget.
ATTORNEY: You forget? Can you give us an example of something you forgot?

___________________________________

ATTORNEY: How old is your son, the one living with you?
WITNESS: Thirty-eight or thirty-five, I can't remember which.
ATTORNEY: How long has he lived with you?
WITNESS: Forty-five years.

_____________________________________

ATTORNEY: What was the first thing your husband said to you that morning?
WITNESS: He said, "Where am I, Cathy?"
ATTORNEY: And why did that upset you?
WITNESS: My name is Susan.

______________________________________

ATTORNEY: Do you know if your daughter has ever been involved in voodoo?
WITNESS: We both do.
ATTORNEY: Voodoo?
WITNESS: We do.
ATTORNEY: You do?
WITNESS: Yes, voodoo.

______________________________________

ATTORNEY: Now doctor, isn't it true that when a person dies in his sleep, he doesn't know about it until the next morning?
WITNESS: Did you actually pass the bar exam?

___________________________________

ATTORNEY: The youngest son, the twenty-one year-old, how old is he?
WITNESS: Uh, he's twenty-one.

________________________________________

ATTORNEY: Were you present when your picture was taken?
WITNESS: Would you repeat the question?

______________________________________

ATTORNEY: So the date of conception of the baby was August 8th?
WITNESS: Yes.
ATTORNEY: And what were you doing at that time?
WITNESS: Uh....

_____________________________________

ATTORNEY: She had three children, right?
WITNESS: Yes.
ATTORNEY: How many were boys?
WITNESS: None.
ATTORNEY: Were there any girls?

______________________________________

ATTORNEY: How was your first marriage terminated?
WITNESS: By death.
ATTORNEY: And by whose death was it terminated?

______________________________________

ATTORNEY: Can you describe the individual?
WITNESS: He was about medium height and had a beard.
ATTORNEY: Was this a male or a female?

______________________________________

ATTORNEY: Is your appearance here this morning pursuant to a deposition notice which I sent to your attorney?
WITNESS: No, this is how I dress when I go to work.

______________________________________

ATTORNEY: Doctor, how many of your autopsies have you performed on dead people?
WITNESS: All my autopsies are performed on dead people.

______________________________________

ATTORNEY: ALL your responses MUST be oral, OK? What school did you go to?
WITNESS: Oral.

______________________________________

ATTORNEY: Do you recall the time that you examined the body?
WITNESS: The autopsy started around 8:30 PM.
ATTORNEY: And Mr. Denton was dead at the time?
WITNESS: No, he was sitting on the table wondering why I was doing an autopsy on him!

______________________________________

ATTORNEY: Are you qualified to give a urine sample?
WITNESS: Huh?


______________________________________

ATTORNEY: Doctor, before you performed the autopsy, did you check for a pulse?
WITNESS: No.
ATTORNEY: Did you check for blood pressure?
WITNESS: No.
ATTORNEY: Did you check for breathing?
WITNESS: No.
ATTORNEY: So, then it is possible that the patient was alive when you began the autopsy?
WITNESS: No.
ATTORNEY:
How can you be so sure, Doctor?
WITNESS: Because his brain was sitting on my desk in a jar.
ATTORNEY: But could the patient have still been alive, nevertheless?
WITNESS: Yes, it is possible that he could have been alive and practicing law.

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 11:14:16 / Hrefna

oh....

Oh varð bara að segja ykkur frá þessu... ég og óli leigðum okkur mynd í gærkvöldi, tókum eina nýja - world trade center, sem var bara mjög góð, maður vissi nottlega alveg hvernig hún var, eða sagan, en hún var samt góð. Þetta var svona frá löggunnar sjónarhorni... alveg ótrúlegt hvernig þetta var allt, að eitthvað svona hafi gerst fyrir bara nokkrum árum, ótrúlegt!!!
en svo tókum við líka eina gamla mynd með, og ég valdi note book =) hafði aldrei séð hana, en er búin að heyra svo ótrúlega mikið um hana, og hún var ekkert smá góð!!! Þvílikt sæt, óli sofnaði nú einhverstaðar í miðjunni og ég kláraði hana ein, og grenjaði og grenjaði yfir henni, kanski ágætt að sjá hana bara ein held ég :) pott-þétt svona mynd sem að maður á eftir að geta horft á aftur og aftur...
Annars fórum við líka út að borða í gær, á red chili í pósthússtræti, og ég verð eiginlega bara að segja að við vorum ekki sátt við matinn né þjónustuna þar... Fengum okkur bæði nautasteikur, og ég vildi hafa mína medium, óli vildi medium rare, allavega þegar við fengum matinn þá var óla steik hálf hrá, hefði eiginlega ekki getað verið hrárri án þess að sleppa því hreinlega að setja hana á grillið, og mín var alveg vel hrá líka, aðeins rétt steikt bara... úff 8| ég er nú bara nýbyrjuð að fá mér medium annars hef ég alltaf fengið mér alveg well done! en allavega kvörtuðum við, og kjötið var tekið aftur og var mun skárra í seinna skiptið... en þetta var nú samt ekki allt, kartöflurnar voru líka háfkaldar - bara svona upphitaðar, og sósan mín var farin að skilja sig....
En vá nóg um kvart :) ein geðveikt gröm hérna heima hihi, nei nei bara pirrandi þegar maður er að reyna fara og fá sér eitthvað gott saman og kvöldið fer bara í að pæla í matnum og þjónustunni á frekar slæman hátt
haha en já annars er voða lítið að frétta af okkur held ég, ætlum að kíkja í mat til tengdó í kvöld, það er alltaf fínt, og svo er óli að fara á næturvakt, þannig að ég verð bara ein hérna í nótt :frown: alltaf jafn leiðinlegt!!!
En ég ætla að reyna fara bæta mig í þessu bloggi, og er alltaf að vonast eftir einni færslu frá steinu kleinu líka :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 12:41:49 / Hrefna

Vissir þú?...

... að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að fá blæðingar?

... að af 3 milljörðum kvenna í heiminum eru aðeins u.þ.b. 10 súpermódel?

... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni?

...að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum?

... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar)!!

... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun?

... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum?

... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70% kvenna.

... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt?

... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt?
Fegurð konunnar er ekki hægt að smækka niður í mælieiningar heldur felst hún í þeirri útgeislun sem ástin á sjálfri sér veitir hverri og einni.

-Fegurð felst í þroska og góðri sjálfsímynd og fer einungis batnandi með árunum.

-Spurningin er ekki um fatastærðir, kílóafjölda, hæð eða háralit, heldur er hún spurning um að læra að elska sjálfa sig frá toppi til táar

-Fékk þetta lánað af síðunni hennar dóru stínu, frekar merkilegar staðreyndir :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 11:58:06 / Hrefna

loksins kemur færsla =)

Ætli maður verði ekki að gera eitthvað í þessum kvörtunum og reyna koma með eitt lítið blogg hérna inn... Er nú samt alltaf að bíða eftir með-bloggara mínum til að koma með færsluna sem að hún var búin að segjast ætla koma með.... ... ... ;)
En lífið er yndislegt þessa dagana, eins og oftast. Er á fullu í skólanum, og er bara alveg að fíla það! miklu skemmtilegra á þessari önn en fyrir jól, ekki eins mikil pressa nottlega út af klásusinn er búin, en líka bara skemmtilegri fög og svona :) Ég er reyndar ekki enn búin að opna bók 8| en það hlýtur að fara koma að því fljótlega, allavega ætti ég að vera byrjuð, fæ mig bara einhvernvegin ekki í það... þið kanski kannist við þetta einhver???
Ég og óli erum líka á fullu að reyna plana sumarið, veit að það er bara janúar, og langt í að sumarmánuðirnir koma, en maður verður víst að fara panta ferð núna ef maður ætlar að ná sér í einhverja góða ferð... Bandaríkjaferðin okkar er líklega dottin upp fyrir, ættarmótinu frestað um óákveðin tíma, hver veit nema það verði reynt aftur 2008...  Þannig ef einhver er með tips á góða staði, endilega láitð okkur vita... erum opin fyrir öllu.
Ég er að hugsa um að reyna kíkja á útsölurnar eitthvað í dag, kíkti aðeins í smáralindina í gær, fann reyndar bara einn bol á mig og óla, flest fötin eru víst að klárast, allavega mínar stærðir og þannig, en ætla að gera eina tilraun enn í dag, og fara þá í kringluna í staðin. Vona bara að það verði ekki stappað af fólki, verð svo dösuð þegar kringlan er full.... algjör orkuþjófur stundum!
Held að það sé nú ekkert annað sérstakt að frétta hjá okkur hérna á otrateiginum, allavega ekkert sem að ég man okkuratt núna, þannig ef ég man eitthvað seinna þá bíður það bara betri tíma :)
ætla að fara horfa á grays anatomy ---> sem er b.t.w. uppáhalds þátturinn minn núna! er alveg orðin húkkt, grenja hérna ein í nánast hverjum þætti! er svo spennandi, er á þriðju seríu núna og get ekki beðið eftir að sjá næsta þátt...
bæjó :haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 19:35:40 / Hrefna

hahahahah

KOMST INN Í HJÚKKUNA =)

Vá er ekkert smá ánægð hérna í vinnuni, var að lesa áðan að ég komst inn í hjúkrunarfræði :) engin smá léttir!!! Loksins er biðin búin og maður getur farið að plana veturinn og framtíðina ;)

Gekk bara mjög vel hjá mér, allavega er ég ánægð með árangurinn, var nr23-24 inn, sem er bara þokkalegt þar sem við vorum eitthvað um 130 sem reyndum prófin.

Ég er alveg að springa úr gleði hérna, get ekki hætt að brosa, vildi að ég væri ekki í vinnunni þannig maður gæti farið að gera eitthvað skemmtilegt til að fagna, en það verður bara að bíða betri tíma :) jeiejeijei, veit ekkert hvað ég á að skrifa meira, kem með eitthvað skemmtilegra næst....

kv Hrefna Hjúkka :D


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagsetning
27. janúar 2012
Klukkan